Atarna
rock
Um flytjanda
Atarna var stofnuð árið 2018 af gítarleikaranum Guðmundi Stefáni Þorvaldssyni þegar hann hóaði saman fyrrum hljómsveitarfélögum sínum úr þjóðlagarokksveit Hraun. Frá því að Hraun leið undir lok hafa þeir allir notið mikillar velgengni í ýmsum hljómsveitum á borð við Skálmöld, Ampop, Glerakur og Kronika. Nú eru þeir komnir saman á ný og eru að skapa fjölbreyttan tónlistarvef sem dregur ríkan innblástur frá indí-tónlist mótunaráranna, blandaðri þeirri reynslu sem þeir hafa safnað í sarpinn í gegnum árin.
Frumraun þeirra, platan „Vegur sem eitt sinn var“, er hetjuferðalag — sagan af manni sem stendur við barminn, öskrar út í tómið og tómið svarar til baka.