Björn Steinar Sólbergsson
classical
Um flytjanda
Steinar Logi Helgason, organisti, kemur fram á hádegistónleikum í Hallgrímskirkju þann 5. mars næstkomandi klukkan 12:00. Tónleikarnir taka um hálfa klukkustund. Miðar verða í boði á tix.is og við innganginn en miðaverð er 2000 krónur. Ókeypis er fyrir börn, 16 ára og yngri. Á tónleikunum ætlar Steinar Logi að flytja verk eftir Dieterich Buxtehude og Felix Mendelsohn sem eru tengd föstutíðinni og sálmalaginu Vater unser in Himmelreich. Efnisskrá Dieterich Buxtehude (1637 - 1707) Passacaglia í d-moll, BuxWV 161 Von Gott will ich nicht lassen, BuxWV 220 Von Gott will ich nicht lassen, BuxWV 221 Vater unser in Himmelreich, BuxWV 219 Felix Mendelssohn (1809 - 1847) Orgelsónata nr. 6 í d-moll, op. 65 I. Kórall og tilbrigði - Kórall, Andante sostenuto, Allegro molto II. Fúga - Sostenuto e legato III. Finale - Andante Um Steinar Loga: Steinar Logi lærði á píanó í Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Nýja Tónlistarskólanum og í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hann hóf nám í Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 2010 og kláraði þar kirkjuorganistapróf og lauk síðar bakkalársgráðu úr Kirkjutónlistarbraut Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Björns Steinars Sólbergssonar. Steinar Logi stundaði meistaranám í Ensemble conducting við Konunglegu tónlistarakademíuna í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan jólin 2020. Steinar hefur stjórnað fjölda kóra og starfað sem organisti, píanisti og stjórnandi á mörgum vígstöðum. Hann var tilnefndur ásamt Cantoque ensemble sem tónlistarhópur ársins í flokki Sígildrar-og samtímatónlistar. Steinar Logi tók við stöðu kórstjóra Hallgrímskirkju haustið 2021.
Viðburðir framundan
-
-
-
-
Þorlákstíðir – Vesper / Aftansöngur í HallgrímskirkjuHallgrímskirkjaþri 22. des 2026 17:00Skoða viðburð -
La Nativité du Seigneur „Fæðing Freslsarans“ eftir Olivier MessiaenHallgrímskirkjalau 26. des 2026 16:00Skoða viðburð -