Brynhildur Guðjónsdóttir
Um flytjanda
Brynhildur Guðjónsdóttir leikari, leikstjóri og fyrrum leikhússtjóri Borgarleikhússins lauk BA prófi í frönsku frá HÍ og útskrifaðist úr leiklistarnámi frá Guildhall School of Music and Drama. Hún var rannsóknarnemandi í leikritun við Yale School of Drama veturinn 2011-2012. Brynhildur var leikari við Þjóðleikhúsið frá 1999-2014 og leikari og leikstjóri við Borgarleikhúsið frá 2014. Hún hefur átta sinnum hlotið íslensku leiklistarverðlaunin Grímuna fyrir leik, leikstjórn og skrif, hún var handhafí íslensku Bjartsýnisverðlaunanna 2008 og hlaut einnig Stefaníustjakann það sama ár. Brynhildur var sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu árið 2018, fyrir störf sín í þágu íslenskrar leiklistar og 2024 var hún sæmd frönsku riddaraorðunni Chevalier des Arts et des lettres.