Á meðal þeirra - Einkasýning Ölfu Rósar Pétursdóttur í Gallerí Fold
Gallerí Fold, Rauðarárstígur 14, 105 Reykjavík Kort
lau. 15.08.2026 14:00
Alfa Rós Pétursdóttir er myndlistarkona sem vinnur aðallega með textíl og trefjar. Í verkum sínum rannsakar hún áferð, form og lit sem leiðir til að nálgast tilfinningalega og skynræna upplifun.
Hún sækir efnivið í hversdagsleikann, þar sem smáir og stórir atburðir, óvissa og áskoranir fléttast saman við samfélagslegar aðstæður og persónulega reynslu.
„Á þessari sýningu velti ég fyrir mér hvernig einstaklingurinn getur verið órjúfanlegur hluti af margmenni – samfélagi, hópi eða kerfi – og hvernig við erum samtvinnuð heildinni, en getum jafnframt upplifað okkur ósýnileg eða jafnvel týnd innan fjöldans. Þessi togstreita er tengd íslensku fjallalandslagi, þar sem form og yfirborð bjóða upp á bæði skýr og óljós mörk. Landslagið verður þannig myndlíking fyrir tilvist manneskjunnar innan stærri heildar – stöðugt til staðar, en ekki alltaf sýnileg.“
Alfa Rós útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist frá Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam árið 2011 og lauk MA-gráðu í hagnýtri menningarfræði frá Háskóla Íslands árið 2016. Hún hefur starfað sjálfstætt sem listamaður síðan 2018 og tekið þátt í fjölda samsýninga og einkasýninga hérlendis og erlendis.
Þetta er hennar fyrsta einkasýning í Gallerí Fold.
Sýningin stendur frá 15.ágúst til og með 5.september.
Léttar veitingar í boði á sýningaropnun 15.ágúst kl 14.
Öll velkomin.