Hverafugl - Tónlistarhátíð í Hveragerði
sun. 28.06.2026 00:00
Hverafugl er ný sumartónlistarhátíð í Hveragerði sem fer fram dagana 26. til 28. júní 2026. Hátíðin leggur áherslu á samtímatónlist en er um leið lifandi vettvangur þar sem mismunandi tónlistarstefnur og listform mætast. Dagskráin er unnin í nánu samstarfi við heimafólk og stór hluti hennar tengist svæðinu, sögu þess, náttúru og mannlífi. Tónleikar og viðburðir fara fram víðsvegar um Hveragerði, gjarnan á óhefðbundnum og spennandi stöðum sem skapa einstaka nálægð milli flytjenda, áhorfenda og umhverfis.
Setning hátíðarinnar fer fram í Blómaborg þar sem m.a. kórinn Hverafuglar kemur fram. Fyrsta kvöldið verða tónleikar í Grunnskólanum í Hveragerði þar sem koma fram CAPUT undir stjórn Guðna Franzsonar og einsöngvarinn Svanlaug Jóhannsdóttir. Þau flytja stórvirkið Stokkseyri eftir Hvergerðinginn Hróðmar Inga Sigurbjörnsson en verkið var samið við ljóð Ísaks Harðarsonar. Á tónleikunum munu einnig hljóma verk eftir nemendur Hróðmars, þ.m.t. verk eftir Báru Gísladóttur, Gísla Magnússon, Herdísi Stefánsdóttur og Snorra Hallgrímsson.
Morguninn eftir verður haldið í Hveragerðiskirkju þar sem Pétur Nói Stefánsson, Jónas Sigurðsson og Halldór Smárason bjóða upp á morgunflæði á tónleikunum Alþýðan og orgelið. Seinna um daginn má upplifa ljóðagjörning hjá árbakkanum við Varmá hjá Þetta líður hjá steininum. Þar munu Björg Brjánsdóttir flautuleikari og Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir söngkona spinna út frá ljóðum Elísabetar Jökulsdóttur. Hljóðinnsetning sem er samstarfsverkefni Ingibjörgu Ýrar Skarphéðinsdóttur og Kristofers Rodriguez Svönusonar mun opna í Bananahúsi Garðyrkjuskólans á Reykjum og Njörður Sigurðsson mun leiða gesti hátíðarinnar í sögugöngu um Hveragerði. Dagurinn mun síðan enda á tónverkinu áttir eftir Lilju Maríu Ásmundsdóttur í flutningi Heiðu Árnadóttur.
Lokadagurinn hefst á tónleikum í Sundlauginni Laugaskarði þar sem Strokkvartettinn Siggi mun flytja verk innblásin af vatni, sundmenningu og hverum. Á dagskránni verða verk eftir Ellis Ludwig-Leone, Halldór Smárason og Unu Sveinbjarnardóttur. Því næst mun KIMI Ensemble flytja ný verk eftir tónsmíðanemendur Listaháskóla Íslands í Listasafni Árnesinga. Eftir ferðalag um mismunandi stíla bindur hin sögufræga kammerpopphljómsveit Melchior endahnút á hátíðina með miklum tónlistarbræðingi. Tónleikarnir kallast á við opnunartónleikana með Hvergerðinginn Hróðmar Inga Sigurbjörnsson í broddi fylkingar.
Listrænt teymi Hverafugls skipa Halldór Smárason, Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir og Lilja María Ásmundsdóttir.
Hátíðin er styrkt af Tónlistarsjóði, Uppbyggingarsjóði Suðurlands, Hveragerðisbæ, Hótel Örk og Kjörís.
Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á vefsíðunni: https://www.hverafugl.com/dagskra-2026
Miðasala: https://www.midix.is/is/hverafugl-allir-26-28-jun-2026/eid/1090/group/1
Flytjendur
-
HverafuglTónlistarhátíð í Hveragerði / Music Festival in Hveragerði
-
Hverafuglar
Kór félags eldri borgara
-
Caput EnsembleHljómsveit undir stjórn Guðna Franzsonar
-
Svanlaug Jóhannsdóttir
söngkona
-
Bára GísladóttirTónskáld og kontrabassaleikari
-
Snorri Hallgrímsson
Ungum umhverfissinnum
-
Jónas Sig
Tónleikar með Ritvélar framtíðarinnar
-
Halldór SmárasonTónlistarstjóri
-
Elísabet JökulsdóttirLjóðskáld og upplestur
-
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Tónskáld sem hefur skrifað ný verk fyrir tríóið.
-
Lilja María Ásmundsdóttir
Tónskáld, píanóleikari og hljóðskúlptúra.
-
Heiða ÁrnaHeiða Árnadóttir has focused her career on the performance of modern music, folk, jazz, experimental works, and lied music. She has premiered compositions by many Icelandic composers, including Gunnar Karel Másson, Ásbjörg Jónsdóttir, Þórunn Gréta Sigurða
-
Strokkvartettinn Siggi / Siggi String QuartetFjölbreytt hljóðfærasamsetning
-
KIMI ensemble
Includes Jónas Ásgeir Ásgeirsson (harmonika), Katerina Anagnostidou (percussion), and Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir (singer).
-
Listasafn Árnesinga
Árnessýsla.
-
Listaháskóli Íslands
Tónlistardeild Listaháskóla Íslands
-
Gísli Magnússon
Moderator of the event
-
Kónguló
Kónguló is the solo project of Herdís Stefánsdóttir, an accomplished Icelandic composer and producer who has made a name for herself in the film and television industry. She was formerly part of the electro pop duo East of My Youth before embarking on her own musical journey.
The name Kónguló, which means spider in Icelandic, is a fitting moniker for an artist whose music is as intricate and mesmerizing as a spider’s web. Herdís’s first single, “Be Human,” featuring Icelandic artist neonme (Salka Valsdóttir), showcases her talent for blending electronic beats with haunting vocals and poetic lyrics.
Herdís has worked as a composer and producer for years, and her recent work includes the Apple+ series The Essex Serpent, the Hulu series Y the Last Man, and M. Night Shyamalan’s Knock at The Cabin. Her work on these projects has earned her multiple Icelandic Music Awards, cementing her status as one of Iceland’s most exciting musical talents. -
Pétur Nóileikur á harmóníum og leiðir safnaðarsöng