Sveinstindur - Skælingar
Útivist, Katrínartún 4, 105 Reykjavík Kort
lau. 04.07.2026 08:00
Þessi leið er ein helsta skrautfjöður Útivistar.
Ferðin hefst með göngu á Sveinstind.
Útsýnið yfir hinn margrómaða Langasjó, sem kúrir upp við Vatnajökul, er hreint ólýsanlegt.
Í góðu skyggni má líta yfir bróðurpart hálendis Íslands.
Leiðin liggur svo um fáfarnar slóðir, söndugar og mosavaxnar, meðfram Skaftá og um leynistigu með Uxatindum og fram grösuga Skælinga.
Ganga á Gjátind og um sjálfa Eldgjá er góður lokakafli á þessari margbreytilegu göngu sem lýkur í Hólaskjóli.
Ferðirnar eru trússferðir.
Farangur er fluttur á milli náttstaða, svo að þátttakendur þurfa aðeins að bera bakpoka með nesti og hlífðarfötum.
Upplýsingar og skráning: https://www.utivist.is/ferdir-og-dagskra/lengri-ferdir/vidburdur/6771/sveinstindur-skaelingar
Flytjendur
-
Útivist
www.utivist.is | Útivist er ferðafélag sem býður upp á fjölbreyttar ferðir um náttúru Ís