Mark Watson dagurinn

Mark Watson dagurinn

Glaumbær, Byggðasafn Skagfirðinga - Skagafjörður Heritage Museum, Kort

lau. 18.07.2026 15:30

Í tilefni af afmæli enska aðalsmannsins Mark Watson stendur Byggðasafn Skagfirðinga fyrir dagskrá í Glaumbæ þann 18. júlí 🎉

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Sögusetur íslenska fjárhundsins og við hvetjum fólk til að sækja það heim í tilefni dagsins 🐕

Watson var mikill Íslandsvinur og eigum við honum margt að þakka, þar með talið rausnarleg peningagjöf til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ árið 1938 sem átti sinn þátt í að bærinn hefur varðveist. Watson hefur jafnframt verið titlaður bjargvættur íslenska fjárhundsins og er afmælisdagur hans "Dagur íslenska fjárhundsins" 🐾🇮🇸

Í tilefni dagsins er frítt á safnið fyrir eigendur íslenskra fjárhunda í fylgd með hundunum 🐕

☕️ Á kaffihúsi safnsins í Áshúsi er góðgæti í boði fyrir menn og hunda 🐶🍰

🎟️ Ókeypis aðgangur er fyrir börn yngri en 18 ára og við minnum lögheimilisíbúa Skagafjarðar á ársmiðann, sem gildir í eitt ár frá kaupum hans óháð fjölda heimsókna.

💚 Verið velkomin í Glaumbæ! 🌿

🐶🐶🐶

Flytjendur