Bríet, blómin og Hannes

Bríet, blómin og Hannes

Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Kort

sun. 27.09.2026 13:00

ISK 3000.00
Miðar / Skráning
ISK 3000.00
Miðar / Skráning

Dagskráin „Bríet, blómin og Hannes“ var flutt í Hannesarholti - Hljóðbergi 27. september 2025, til heiðurs Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindakonu, blaðamanni og ritstjóra Kvennablaðsins á afmælisdegi hennar, og verður nú endurtekið í september 2026. Fjallað verður um samstarf Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands og Bríetar, ólíka æsku þeirra og kjör og hvernig lífsþræðir þeirra spunnust saman, meðan bæði lifðu. Samstarf þeirra hafði mikil áhrif á þróun kvenréttinda hér á landi. Sá sögulegi sannleikur má ekki gleymast.

En hvaða blóm eru þetta ? Það færðu að vita ef þú mætir í Hannesarholt þann 27. september.

Sýningin er samvinnuverkefni Leikhúslistakvenna 50 + og Hannesarholts.

Dagskráin er um eina klst.

Þáttakendur

Ásdís Skúladóttir leikstjóri, skrifaði handritið ásamt hópnum

Edda Þórarinsdóttir leikkona

Helga E. Jónsdóttir leikkona

Þórey Sigþórsdóttir leikkona

Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari

Flytjendur