ReykjarvíkurÞríþrautin - Íslandsmeistaramót í ólympískri þríþraut 2026

ReykjarvíkurÞríþrautin - Íslandsmeistaramót í ólympískri þríþraut 2026

Menntaskólinn í Reykjavík, Lækjargata 7, 101 Reykjavík Kort

sun. 05.07.2026 08:00

Ægir3 og Reykjavíkurborg standa fyrir einstökum þríþrautarviðburði þegar Reykjavíkurþríþrautin fer fram í fyrsta sinn í miðborg Reykjavíkur sunnudaginn 5. júlí 2026. Keppni hefst kl. 08:00.

Synt verður við Skarfaklett, meðfram bryggjunni að Skarfagarðsvita og til baka tvo hringi, samtals 1500 m. Hjólað verður frá Skarfaklettssvæðinu eftir Sæbraut að Hörpu. Farnir verða fimm hringir, samtals 40 km. Hlaupið verður meðfram Sæbraut á göngustígnum að Hörpu og til baka að Skarfakletti. Hlaupinn verður einn hringur, samtals 10 km.

Athugið að Sæbraut verður lokuð á meðan hjólakeppnishluti fer fram.

Skráðu þig strax á þennan einstaka viðburð 🫴

Viðburðadagskrá | Þríþrautarsamband Íslands https://share.google/CZXOdsEMZxnqQVPRg

Nánari brautalýsing kemur fljótlega!

Flytjendur