Svavar Knútur, gítar og söngur - Berjadagar
Ólafsfjarðarkirkja, Kirkjuvegur 10, 625 Ólafsfjörður Kort
lau. 27.06.2026 20:00
Svavar Knútur, gítar og söngur
Svavar hefur um árabil verið einn af þeim listamönnum sem kunna að kveikja ljós í salnum með nærveru, hlýju og tónlist sem snertir. Hann sækir innblástur í íslenskan ljóðaarf, leikur sér með þjóðsögur, vísur og frásagnir, og leiðir áheyrendur inn í heim þar sem orð og tónar fléttast saman af einlægni og töfrum. Svavar mun koma á óvart og frumflytja ný lög á tónleikunum ásamt þremur strengjaleikurum en saman halda þau til Þýskalands í tónleikaferð næsta haust. Tónlistarunnendur og gestir í Ólafsfirði ættu ekki að láta þennan viðburð framhjá sér fara.
//
An Evening of verses
For years, Svavar has been one of those artists who knows how to light up the hall with presence, warmth and touching music. He will do so in Ólafsfjörður Church on June 27th at 8:00 PM. He draws inspiration from Icelandic textual heritage, plays with folk tales, verses and stories, and leads the audience into a world where words and tones intertwine with unique sincerity. In the program 'Vakað með vísum' on Saturday, June 27th, Svavar plays with Icelandic textual heritage, folk tales and well-known poems, creating a warm and charming musical awakening with singing and atmosphere that undoubtedly merge into one unforgettable experience. Svavar will premiere new songs at the concert along with three string players, since they plan to go on tour in Germany next fall. Music lovers and visitors to Ólafsfjörður should not miss this event.
Dagskrá hátíðarinnar:
Föstudagur // Friday
Að morgni//In the morning - Ólafsfjarðarkirkja
Tónleikar//Concert
11:00 - 11:45
//English below//
Fram kemur:
Ólöf Sigursveinsdóttir, barokkselló
„Bach...í bítið“ - Leikið eftir handriti Önnu Magdalenu
Svíta nr. 5 í c-moll, BWV 1011 eftir Jóhann Sebastían Bach. Ólöf Sigursveinsdóttir leikur sex þætti svítunnar á barokkselló í kirkjunni og tekur flutningurinn hálftíma.
Að tónleikunum loknum er gestum boðið upp á norðlenska, heimabakaða ostaköku og kaffibolla. Ljúf og nærandi morgunstund í tónum - og einnig bragði!
//
Flytjendur
-
Svavar KnuturIcelandic singer/songwriter/storyteller and Fjord folker.
I make broccoli music.
-
Kristín Lárusdóttir
Hljómsveit, selló
-
Berjadagar
tónlistarhátíð