CELINE DION NOSTALGÍA

CELINE DION NOSTALGÍA

Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

fim. 19.11.2026 20:00

Nú er langþráður draumur að verða að veruleika þegar ég dembi mér í Celine Dion Nostalgíu 19. nóvember.

Hver elskar ekki þessa tónlist? Öll þessi stóru og mögnuðu lög!

Ég ætla svo sannarlega að gefa allt mitt í þetta og á sama tíma njóta mín í botn því það jafnast ekkert á við að vera á tónleikum og fá að upplifa vel samda tónlist í lifandi flutningi með flottum hljóðfæraleikurum. Þess vegna fékk ég með mér alveg einstakt fólk til að hjálpa til við að láta þennan draum rætast og gera kvöldið ógleymanlegt.

Með mér eru:

Vignir Þór Stefánsson, tónlistarstjórn og píanó

Helgi Reynir Jónsson, gítar og hljómborð

Grétar Lárus Matthíasson, gítar

Róbert Þórhallsson, bassi

Jón Geir Jóhannsson, trommur

Ragna Björg Ársælsdóttir og Íris Lind Verudóttir, einstakar söngkonur sem munu sjá um allar raddir

Mikið hlakka ég til að sjá ykkur.

Miðasalan er hafin hér: https://tix.is/event/21570/celine-dion-nostalgia

- Guðrún Árný

Flytjendur