Bækistöðvaferð í Bása 60+

Bækistöðvaferð í Bása 60+

Útivist, Katrínartún 4, 105 Reykjavík Kort

mið. 15.07.2026 10:00

Eftir velheppnaðar bækistöðvaferðir í Bása síðast liðin sumur verður leikurinn endurtekinn.

Nánari upplýsingar og skráning https://www.utivist.is/ferdir-og-dagskra/60-ferdir/vidburdur/6786/baekistodvaferd-i-basa-60

Stundum er talað um að hjarta Ferðafélagsins Útivistar slái í Básum á Goðalandi, en þar eiga jafnt yngri sem eldri Útivistarfélagar margar sælar minningar. Þessi ferð er tilvalin fyrir eldri félaga sem vilja endurupplifa góðar minningar, sem og nýja félaga á virðulegum aldri sem langar að kynnast þessari paradís undir leiðsögn kunnugra.

Lagt verður af stað frá Mjódd kl. 10:00 á miðvikudegi og ekið í Bása. Eftir að hafa komið sér fyrir í skála er farið í létta göngu í nágrenni skálans, genginn Básahringur með viðkomu í Fjósafuð.

Daginn eftir verður boðið uppá göngur við allra hæfi. Hvert haldið verður kemur í ljós síðar. Farið verður í 5-6 klst. göngu. Einnig verður farin léttari ganga í nágrenni Bása fyrir þá sem það vilja. Þeir sem ekki fara í gönguferð geta haldið kyrru fyrir í Básum og notið kyrrðarinnar.

Varðeldur með söng á fimmtudagskvöldinu.

Heimfarardag verður stoppað á leiðinni og tekin um tveggja tíma gönguferð á einhverjum af þeim náttúruperlum sem þar eru.

Fararstjórar: Jóhanna Benediktsdóttir, Emilía Magnúsdóttir og Guðbjartur Guðbjartsson.

Innifalið: Leiðsögn, akstur, heit sturta og tvær skálagistingar auk sameiginlegra kvöldmáltíða bæði kvöldin.

Brottför: 15. júlí kl. 10.00 frá Mjódd/bíó megin.

Heimkoma: 17. júlí á milli kl. 17.00 og 18.00.

Flytjendur