Hið geysivinsæla spunamaraþon Improv Ísland fer fram 11 árið í röð í Þjóðleikhúskjallaranum á Menningarnótt. Boðið verður upp á sprenghlægilegar spunasýningar á hálftíma fresti þar sem hver sýning er frumsýning og lokasýning á brakandi fersku gríni sem verður til á staðnum. Okkar færustu spunaleikarar skiptast á að sýna ólík spunaform og aldrei að vita nema þjóðþekktir gestir kíki í heimsókn og taki þátt í gríninu. Spunamaraþonið hefur verið einn vinsælasti viðburður Menningarnætur undanfarin ár og því mikilvægt að vera tímanlega.
Öll eru velkomin og aðgangur ókeypis!
Spunamaraþon Improv Ísland
Þjóðleikhúsið | Kjallarinn, Hverfisgata 19, 101 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 15:00
Flytjendur
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.
-
Improv Ísland
Improv Ísland spunasýningar öll miðvikudagskvöld í Þjóðleikhúskjallaranum