Candy Floss - Sígildir sunnudagar

Candy Floss - Sígildir sunnudagar

Harpa | Kaldalón, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

sun. 21.02.2027 16:00

ISK 4900.00
Miðar / Skráning
ISK 4900.00
Miðar / Skráning

Candy Floss er ný, litrík og lífleg plata gítarleikarans Francesco Rista. Á þessum útgáfutónleikum fá möguleikar rafmagnsgítarsins að njóta sín til hins ýtrasta, í marglaga samspili tóna, effekta og þróaðrar tækni. Tónleikagestir fá að upplifa kraftmikið hljóðlandslag þar sem gítarinn sem einleikshljóðfæri og með hljóðuppökum færist frá hinu  smæsta og fíngerðasta, yfir í yfirþyrmandi styrkleika, gegnum fjölbreytt úrval lita og blæbrigða.

Á tónleikunum teflir Francesco Rista saman minimalískum tónsmíðum eftir Steve Reich, John Cage og Bryce Dessner og svo nýjum verkum tónskálda á borð við Finn Karlsson, Nick Martin og Francesco Rista.

Búið ykkur undir magnaða tónleikaupplifun, viðburðarríku ferðalagi um bjarta liti, þétta hljóðheima og endalausa möguleika rafmagnsgítarsins.

Flytjendur

  • Francesco Rista

    Ítalskur gítarleikari og tónskáld búsettur á Íslandi, þekktur fyrir crossover-verk, barokkútsetningar og frumflutninga á nútíma verkum.

  • Sígildir sunnudagar
    Sígildir sunnudagar

    Tónleikar Kammermúsíkklúbbsins eru hluti af Sígildum sunnudögum í Hörpu.