How to become Icelandic in 60 minutes

How to become Icelandic in 60 minutes

Harpa | Kaldalón, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

fim. 06.08.2026 19:00

ISK 6450.00
Miðar / Skráning
ISK 6450.00
Miðar / Skráning

HOW TO BECOME ICELANDIC IN 60 MINTUES er uppistands-leiksýning sem fer fram á ensku. Sýningin er samin og framleidd af Bjarna Hauki Þórssyni og leikstýrð af Sigurði Sigurjónssyni. Leikarar eru: Bjarni Baldvisson og Jóhann Alfreð Kristinsson.

HOW TO BECOME ICELANDIC IN 60 MINTUES er sambland af uppistandi og söguleikhúsi þar sem reynt er að kenna þeim sem sýninguna sækja hvað það er að vera íslenskur. Sprenghlægileg klukkustundar löng sýning fyrir fólk á öllum aldri. Samstarf Bjarna Hauks og Sigurðar ætti að vera Íslendingum vel kunnugt enda hafa þeir búið til nokkrar vinsælar sýningar; Hellisbúinn, Pabbinn, Afinn, Maður sem heitir Ove og Pabbinn finnur afann.

Sýningin hefur gengið fyrir fullu húsi í Hörpu frá því að hún var frumsýnd árið 2012. Fleiri en 100 þúsund manns hafa séð HOW TO BECOME ICELANDIC IN 60 MINUTES og nálgast sýningarfjöldinn 1000, sem er Íslandsmet.

Sýningin fer fram á ensku.

Flytjendur

  • Bjarni Baldvisson

    Íslenskur leikari, einn af aðalleikurum í sýningunni.

  • Jóhann Alfreð Kristinsson
    Jóhann Alfreð Kristinsson

    Íslenskur leikari, einn af aðalleikurum í sýningunni.

  • Bjarni Haukur Þórsson
    Bjarni Haukur Þórsson

    Leikgerð & leikstjórn

  • Sigurður Sigurjónsson

    Leikstýrð af Sigurði Sigurjónssyni.

  • How to become Icelandic in 60 minutes
    How to become Icelandic in 60 minutes

    HOW TO BECOME ICELANDIC IN 60 MINUTES er leiksýning sem leikin er á ensku, samin og framleidd af Bjarna Hauki Þórssyni og leikstýrð af Sigurði Sigurjónssyni. Leikarar eru Kjartan Darri Kristjánsson og Bjarni Haukur Þórsson.

    HOW TO BECOME ICELANDIC IN 60 MINUTES er sambland af söguleikhúsi og uppistandi þar sem reynt verður að kenna þeim sem sýninguna sækja að verða Íslendingar. Þetta er sprenghlægileg klukkustundarlöng sýning sem ætluð er öllum þeim sem vilja læra hvað það er að vera Íslendingur. Samstarf Bjarna Hauks og Sigurðar ætti að vera íslensku þjóðinni vel kunnugt enda hefur samstarf þeirra getið af sér fimm vinsælar sýningar; Hellisbúann, Pabbann, Afann, How to become Swedish in 60 minutes og Maður sem heitir Ove.

    Leiksýningin hefur gengið fyrir fullu húsi í Hörpu frá því hún var frumsýnd árið 2011. Sýningar nálgast 1000.

    THORSSON PRODUCTIONS