Scott McLemore Multiverse

Scott McLemore Multiverse

Tónspil, Hafnarbraut 22, 740 Neskaupstaður Kort

lau. 27.06.2026 20:00

Scott McLemore: trommur

Hilmar Jensson: gítar

Andrés Þór: gítar

Nico Moreaux: gítar


Bandaríski trommuleikarinn Scott McLemore hefur verið búsettur á íslandi í 20 ár og verið í framvarðasveit íslensks jazz. Hann fer nú í fyrsta sinn með sinn eiginn kvartett, Multiverse, um landið til að fylgja eftir útkomu þriðju hljóðversplötu Multiverse sem ber titlinn Onward og var hljóðrituð í hljóðverinu Sundlaugin í Mosó. Meðlimir Multiverse auk Scotts eru okkar allra fremstu gítarleikarar þeir Hilmar Jensson og Andrés Þór Gunnlaugsson og á kontrabassa leikur frakkinn Nico Moreaux, sem eins og Scott hefur valið að setjast að á Íslandi.

Það er áhugavert að Multiverse hafa leikið víða erlendis en haldið sig við höfuðborgarsvæðið hérna heima. Þeir hafa fengið frábæra dóma í erlendum sem innlendum miðlum og hlotið tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna.

Tónlistin er einstök blanda af lýrík, norrænni stemmningu og spuna.

Flytjendur