DRAWN BY WOMEN - Pioneers in architecture
Arctic Space, Óðinsgata 7, 101 Reykjavík Kort
mán 12. okt 2026 16:00
Bústaðu viðburðinn!Opið hús á rannsóknarvinnustofu um fyrstu konurnar á Íslandi sem útskrifuðust sem arkitektar: Hverjar eru þær? Hver eru verk þeirra? Hvernig starfsumhverfi mætti þeim?
Sýningin TEIKNAÐ AF KONUM: Brautryðjendur í arkitektúr gefur innsýn inn í yfirstandandi gagnaöflun um fyrstu konurnar sem luku námi í arkitektúr, allt frá árinu 1940 til og með 1980. Flestar voru þær héðan en sumar áttu rætur annars staðar. Margar sneru heim eftir nám á meðan aðrar kusu sér starfsvettvang erlendis.
Með upplýsingum úr Arkitektatali frá árinu 1997, ásamt einstaka teikningum, ljósmyndum og vinnugögnum, gefst örlítil vísbending um ævistarf og höfundarverk þessara kvenna og í myndbandsupptökum segja nokkrar þeirra frá viðhorfum sínum, reynslu og ástríðu fyrir arkitektúr til að skapa betra samfélag.
Ljóst er að áhrif þeirra og faglegur metnaður hefur markað varanlegt spor á íslenska byggingalist, ýmist á sviði skipulags eða bygginga, en jafnframt náð langt út fyrir Ísland. Þar má telja til framsæknar skólabyggingar í Frakklandi og félagslegar byggingar í Svíþjóð, sumar svo mikilvæg tímamótaverk að þær hafa verið friðaðar vegna menningarsögulegs gildis. Byggingar og verk þeirra liggja enn víðar; meðal annars í Bandaríkjunum, á Ítalíu, í hjarta norræns samstarfs í Færeyjum, endurreisn tuga kastala í Skotlandi og í skipulagsmálum í Mósambík.
Gestum gefst kostur á að bæta við fróðleik, sögum eða athugasemdum og taka þannig beinan þátt í að stækka gagnasafnið og tengja þræðina enn frekar.
Sýningin verður opin fram til áramóta og áhugasömum bent á að kíkja við í Arctic space á Óðinsgötu 7 í Reykjavík.
Opið: mán/mið/fös 16-18 og lau 11-13. Einnig eftir samkomulagi með því að senda póst á info@arcticspace.is.