Jazz við höfnina

Jazz við höfnina

GK Reykjavík, Tryggvagata 21 (Hafnartorg), 101 Reykjavík Kort

mið. 26.08.2026 18:00

Annan þriðjudag hvers mánaðar eru jazztónleikar á Hafnartorgi Gallery. Þar stíga mismunandi jazztónlistarmenn á svið og færa áheyrendum lifandi tónlist. Tónleikar eru alltaf á sama tíma, frá kl. 19-20. 🎶

Hér fyrir neðan má nálgast dagskrána:

Þriðjudagurinn 10. mars

Róberta Andersen

Þriðjudagurinn 14. apríl

Birgir Steinn og Sólrún Mjöll

Þriðjudagurinn 12. maí

Hróðmar Sigurðsson og Ingibjörg Turchi

Þriðjudagurinn 9. júní

Kristjana Stefánsdóttir, Tómas Jónsson og Birgir Steinn

Þriðjudagurinn 14. júlí

Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson

Þriðjudagurinn 26. ágúst

Jazzhátíð Reykjavíkur - flytjandi tilkynntur síðar

Þriðjudagurinn 8. september

María Magnúsdóttir og hljóðafæraleikari

Þriðjudagurinn 13. október

Tríó Þórdísar Gerðar Jónsdóttur

Þriðjudagurinn 10. nóvember

Sigríður Thorlacius, Ómar Guðjónsson og Tómas R. Einarsson

Þriðjudagurinn 8. desember

Silva og Steini

Tilvalið að koma og gera vel við sig í mat og drykk og njóta lifandi jazztónlistar. 🎺

Flytjendur

  • Jazzhátíð Reykjavíkur
    Jazzhátíð Reykjavíkur

    Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.

    Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.