Hvalvatnsfjörður. Rafhjólaferð
Ferðafélag Akureyrar, Strandgata 23, Akureyri Kort
sun. 16.08.2026 08:00
Hvalvatnsfjörður. Rafhjólaferð
16. ágúst, sunnudagur
Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Jón M. Ragnarsson og Stefán Sigurðsson
Ekið verður sem leið liggur í átt að Grenivík og ekið inn á Leirdalsheiði. Hjólin tekin af við Gljúfurá á Leirdalsheiði. Síðan er hjólað út Hvalvatnsfjörð með sínu stórkostlega útsýni. Hjólað í 3–4 klst með stoppum. Gott er að hafa með sér vaðskó þar sem hugsanlega þarf að vaða yfir eitt vatnsfall.
Þeir sem eiga flutningsfestingu fyrir hjól nota hana, aðrir geta fengið hjólin flutt á hjólakerru.
Vegalengd: 37–42 km. Hækkun er töluverð á þessari leið sérstaklega á leiðinni til baka.
Verð: 6.200 / 7.900 kr. Innifalið: Fararstjórn og flutningur á hjólum á hjólakerru fyrir þá sem þurfa.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.
Flytjendur
-
Jón M. Ragnarsson
Faraarstjórn
-
Stefán Sigurðsson
Fararstjórn