Redesign of Plastic Packaging for Fresh Fish Transport
Veröld – Húsi Vigdísar | Stóri salurinn, Brynjólfsgata 1, 107 Reykjavík Kort
fim 12. nóv 2026 17:30
Bústaðu viðburðinn!Dr. Ziwei Lu er með doktorspróf í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og sérhæfir sig í endanlegri þáttagreiningu (e. finite element analysis; FEA). Hún er upprunalega frá Kína og hefur þriggja ára starfsreynslu frá AAC Technologies og OPPO Communications.
Í erindinu segir Ziwei frá óvæntri leið sinni til Íslands og hvernig hún nýtir FEA í rannsóknum sínum til að þróa sjálfbærari fiskumbúðir. Niðurstöður hennar sýna hvernig bætt hönnun getur gert kleift að flytja um 5% meiri fisk með 5% minna plasti, draga þannig úr losun og flutningskostnaði án þess að skerða styrk umbúðanna.
Nánari upplýsingar á vef KÍM: https://kim.is/2026/10/30/redesign-of-plastic-packaging-for-fresh-fish-transport/
Erindið verður flutt á ensku í stofu 007 í Veröld - húsi Vigdísar 12. nóv kl.17:30.
Boðið er upp á léttar veitingar áður en fyrirlestur hefst – verið velkomin! ☕
Viðburðurinn er hluti af fyrirlestraröðinni Snarl og spjall um Kína sem Kínversk-íslenska menningarfélagið stendur að í samvinnu við Konfúsíusarstofnunina Norðurljós. Fyrirlestraröðin skapar vettvang til að spjalla saman og kynnast fjölbreyttum málefnum tengdum Kína.