Ég er lífsins brauð, segir Jesús
Bústaðakirkja, , Grensáskirkja
sun. 19.07.2026 20:00
Kvöldmessa fer fram í Bústaðakirkju sunnudaginn 19. júlí nk. kl. 20:00. Jónas Þórir leikur á flygil og kórmeðlimir úr Kammerkór Bústaðakirkju munu syngja og leiða almennan safnaðarsöng. Séra Þorvaldur Víðisson flytur hugvekju og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.
Kvöldmessurnar í Bústaðakirkju eru heimilislegar og hátíðlegar.
Jesús segir í guðspjallatexta dagsins: Ég er lífsins brauð.
Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í kvöldmessu í Bústaðakirkju.
Flytjendur
-
Kammerkór Bústaðakirkju
Kammerkór syngur undir stjórn Jónasar Þóris.
-
Jónas Þórir
Jónas Þórir er orgel- og píanóleikari