Blús milli fjalls og fjöru – 15 ára afmælishátíð
Félagsheimili Patreksfjarðar, Aðalstræti 107, 450 Patreksfjörður Kort
fös. 28.08.2026 19:30
28.–29. ágúst 2026 – Félagsheimilið, Patreksfirði
Blús milli fjalls og fjöru snýr aftur í fimmtánda sinn og býður upp á tvö kvöld af frábærri lifandi tónlist í einstöku umhverfi á Patreksfirði.
Föstudagur 28. ágústMagnús Þór Sigmundsson
Sannkallaðir afmælistónleikar! Magnús Þór stígur á svið á sjálfum 78 ára afmælisdegi sínum og fagnar þessum merka áfanga með tónleikagestum á Blús milli fjalls og fjöru. Magnús Þór hefur verið einn af ástsælustu söngvurum landsins í áratugi og flytur sín þekktustu lög í hlýlegri og skemmtilegri stemningu.
Skúli Mennski og hljómsveit
Skúli er þekktur fyrir kraftmikla sviðsframkomu og persónulegan flutning þar sem blús, rokk og íslensk tónlist mætast. Hljómsveitin lofar kvöldi fullt af orku og góðri stemningu.
Blúsband Óskars Loga
Ein efnilegasta blúshljómsveit landsins sem steig sín fyrstu skref á Blús milli fjalls og fjöru. Bandið hefur vaxið jafnt og þétt og kemur nú aftur til að færa gestum kraftmikinn og vandaðan blús.
Hráefni
Hráefni hefur skapað sér sérstöðu með lifandi, kraftmikilli blöndu af rokki, blús og íslenskum lögum. Hljómsveitin er þekkt fyrir frábæra tónleika sem fá salinn með sér frá fyrsta lagi.
- Föstudagur: 5.000 kr.
- Laugardagur: 5.000 kr.
- Hátíðarpassi (bæði kvöld): 9.000 kr.
Komdu vestur og njóttu tveggja kvölda af lifandi tónlist, frábærri stemningu og vestfirskri gestrisni á Blús milli fjalls og fjöru 2026.
Flytjendur
-
Blús milli fjalls og fjöru
Þrettánda hátíð Blús milli fjalls og fjöru verður haldin 30. og 31. ágúst næst komandi. Dagskráin verður byggð á dægurlaga- og rokktónlist í bland við blúsinn sem skipar stóran sess í hjörtum Vestfirðinga sem og annarra landsmanna.Það verður ekki slegið af kröfunum í ár frekar enn endranær, eins og dagskráin ber með sér. Miðasala fer fram á tix.is og við hurð.
Föstudagurinn 30. ágúst
Lítli Matjurtagarðurinn. Er gamalt og gott blúsband sem eru mikið í Jimmy Hendrix og tónlist frá þeim tíma. Þarna eru valinkunnir reynsluboltar á ferð sem opna dagskrána á föstudagskvöld í þetta sinn.
Bjartmar og Bergrisarnir. Þetta er eitt vinsælasta band landsins. Við erum stoltir yfir þessum feng á blúshátíð, sem eiga fjöldan allan af vinsælum lögum sem of langt yrði að telja hér.
Laugardagurinn 31. ágúst
Rock Paper Sisters. Er hágæða rokkband með Eyþór Inga í fararbroddi og það verður engin lognmolla. Eyþór er mikill skemmtikraftur, tónlistamaður og rokksöngvari af guðsnáð.
The Vintage Caravan ljúka svo blúshátíð í ár með þrumurokki og hávaða sem er ekki fyrir viðkvæma. Óskar Logi forsprakki hljómsveitarinnar kom á hátíðina með blúsband sitt árið 2020 og gerði stormandi lukku.
The Vintage Caravan fyllir tónlistarhallir og knattspyrnuvelli um allan heim, slíkar eru vinsældir þeirra. Í vetur fluttu þeir ásamt Eyþór Inga og fl. Tónleika með lögum Led Zeppelin í tvígang fyrir fullu húsi Hörpu á einum degi.
-
Blúsband Óskars LogaHressasta blús band landsins
-
Hráefnihljómsveitin Hráefni Valdi Fly gít/söng Þorleifur Guðjónsson bassi Þórdís Claessen trommur Bergþór Morthens gítar -
Magnús Þór Sigmundsson
Magnús Þór mun fara yfir tónlistarferil sinn en svo til hvert mannsbarn þekkir mörg lög eftir hann.
-
Skúli Mennskigítar, söngur, bassi