Bergdís Júlía // Áður en ég fer…

Bergdís Júlía // Áður en ég fer…

Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík Kort

sun 27. sep 2026 12:00

MA í Sviðslistum

Sviðlistadeild

Útskriftarverk 2026

------

Manstu eftir að hafa stigið fæti inn í rými og fundið strax fyrir manneskjunni sem hafði verið þar á undan? Lyktinni sem hún skildi eftir sig? Vatnsbrúsanum á gólfinu, varalitnum á borðinu eða bara einhverri tilfinningu í loftinu?

Áður en ég fer… er þátttökuverk þar sem við gefum okkur tíma til að skoða ummerkin sem við skiljum eftir okkur í rýmum, hlutum og hvert öðru. Enginn leikari, bara þú í sviðsettu landslagi þar sem forvitnin fær að ráða för…áður en þú ferð.

Tónlist: Borgar Þórisson

Aðstoð við sviðsmynd: Arnar Hauksson

Smiður og hönnuður: Egill Ingibergsson

Lýsingarhönnun: María Jóngerð Gunnlaugsdóttir

Höfundur: Bergdís Júlía

Þakkir: Arnar Hauksson, pabbi, mamma, Amelía Dögun, Brimir Logi, Egill Ingibergsson, María Jóngerð og elsku bestu vinir mínir.

Leiðbeinandi: Hrefna Lind Lárusdóttir

------

Praktískar upplýsingar um verkið:

Aðeins tveir í einu komast á verkið og fara inn á sama tíma um sitthvora hurðina. Verkið er 30 mínútur og ekkert hlé. Sýningardagar eru tveir og 5 slot verða í boði hvorn daginn.

Gestir velja sér sjálfir tíma með því að skrá sig. Skráningarhlekk má finna efst í viðburðinum.

Verkið er gagnvirkt og krefst mikillar þátttöku frá áhorfendum. Þátttakendur þurfa að vera berfættir og ganga að mestu einir í gegnum verkið. Mælt er með að koma með lesgleraugu séu þau notuð almennt við lestur. Tungumál verks er íslenska, (möguleiki á ensku).

Því miður er ekki hjólastólaaðgengi á þessari sýningu. Fólk sem ekki er sjáandi þyrfti að fá að fara í gegnum verkið með einhverjum sér við hlið, þar sem landslag verksins getur verið krefjandi.

Allar frekari upplýsingar um verkið og aðgengi verða sendar í tölvupósti til hvers þátttakanda.

Dagsetningar og tímar:

Laugardagur – 26.09.2026

18:00 -18:40 = 2 áhorfendur

19:00 – 19:40 = 2 áhorfendur

20:00 – 20:40 = 2 áhorfendur

21:00 – 21:40 = 2 áhorfendur

22:00 – 22:40 = 2 áhorfendur

Sunnudagur – 27.09.2026

12:00 -12:40 = 2 áhorfendur

13:00 – 13:40 = 2 áhorfendur

14:00 – 14:40 = 2 áhorfendur

15:00 – 15:40 = 2 áhorfendur

16:00 – 16:40 = 2 áhorfendur

17:00 – Q&A

Verkið fer fram í LHÍ Laugarnesi að Laugarnesvegi 91, 105 Reykjavík. Gengið er inn fyrir ofan hús frá malarbílatæðinu.