Kynning á áhersluatriðum ársreikningaskrár og Verðbréfaeftirlits Evrópu

Kynning á áhersluatriðum ársreikningaskrár og Verðbréfaeftirlits Evrópu

Skatturinn, Katrínartún 6, 105 Reykjavík Kort

fim 12. nóv 2026 09:15

Verðbréfaeftirlit Evrópu (ESMA) birti þann 13. október síðastliðinn áhersluatriði í eftirliti með reikningsskilum og sjálfbærniupplýsingagjöf félaga sem skráð eru á skipulegan verðbréfamarkað á Evrópska efnahagssvæðinu vegna reikningsársins 2026.

Áhersluatriði ESMA og áherslur ársreikningaskrár eru ætluð stjórnendum, fjármálastjórum og þeim aðilum sem koma að gerð og framsetningu reikningsskila ásamt endurskoðendum þeirra.

Ársreikningaskrá hvetur þessa aðila til að kynna sér efni áhersluatriða ESMA.

Fundargestum gefst kostur á að taka þátt á staðnum eða í streymi og geta þátttakendur sent inn spurningar á meðan kynningunni stendur en leytast verður við að svara þeim í lok fundartíma eftir því sem tími leyfir.

Að kynningu lokinni verður gestum á staðnum boðið að staldra við til óformlegs spjalls ásamt léttum veitingum.

Vinsamlegast skráið þátttöku.