Ókeypis danstími - Fyrir feður og unglingana þeirra!
Dansverkstæðið, Hjarðarhagi 47, 101 Reykjavík Kort
sun 27. sep 2026 13:00
Dans fyrir feður og unglingana þeirra!
Geta pabbar dansað?
Fyrir marga unglinga kann sú hugmynd að virðast fjarstæðukennd. Nú gefst unglingum hins vegar tækifæri til að dansa með feðrum sínum undir öruggri handleiðslu Önnu Kolfinnu Kuran, sem er sviðslistakona með langa reynslu af dansi fyrir alla aldurshópa.
Sunnudaginn 27. september kl 13:00 býður hún feðrum og unglingunum þeirra í opinn danstíma á Dansverkstæðinu. Tilefni þessa danstíma er að Anna Kolfinna vinnur nú að dansverkinu Pabba Reif þar sem flytjendur eru feður og unglingar og langar að opna þessa hugmynd fyrir sem flestum.
Allir feður með unglinga frá 13 ára aldri eru hjartanlega velkomnir. Engin kunnátta í dansi er nauðsynleg, en kostur að hafa gaman af góðri danstónlist. Dansgleði og grúf ræður ferðinni, þar sem hópur feðga/feðgina mætist í dansi. Tíminn er ókeypis og varir í eina klukkustund.
Anna Kolfinna Kuran útskrifaðist með BA gráðu í dansi frá Listaháskóla Íslands 2013 og úr performans fræðum frá New york háskóla 2017. Meðal stærri verka hennar eru Yfirtaka sem hún sýndi víðsvegar um Ísland og Norðurlönd 2019-2022. Þar vann hún með konum á aldrinum 10 - 99 ára. Hópar unglinga í Reykjavík og á Austfjörðum tóku þátt í verkinu Femínískt Reif á árunum 2022-2024. Nú vinnur hún að verkinu Pabba Reif þar sem flytjendur eru feður og unglingarnir þeirra. Verkið verður sýnt árið 2027 í Tjarnarbíói.