Reykholtshátíð
Reykholtskirkja, Reykholtsvegur, 320 Reykholt Kort
sun. 26.07.2026 16:00
Grand Finale – Lokatónleikar Reykholtshátíðar
Á lokatónleikum Reykholtshátíðar koma nær allir flytjendur hátíðarinnar fram í fjölbreyttri dagskrá. Fyrri hluti tónleikanna býður áheyrendum upp á söng þriggja af okkar fremstu einsöngvurum, þeirra Arnheiðar Eiríksdóttur, Jóhanns Kristinssonar og Kristins Sigmundssonar, við meðleik Elenu Postumi. Munu þau flytja efnisskrá með söngverkum úr ýmsum áttum, bæði íslenskum og erlendum. Eftir hlé stíga strengjaleikarar hátíðarinnar á svið og ljúka Reykholtshátíð – hinni þrítugustu í röðinni – með flutningi á hinum stórkostlega Strengjasextett í B-dúr, op. 18 eftir Johannes Brahms.
Flytjendur:
Arnheiður Eiríksdóttir, mezzósópran
Jóhann Kristinsson, barítón
Kristinn Sigmundsson, bassi
Elena Postumi, píanó
Joaquín Páll Palomares, fiðla
Pétur Björnsson, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Guðbjartur Hákonarson, víóla
Sigurgeir Agnarsson, selló
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló
Sjá nánar á heimasíðu Reykholtshátíðar, reykholtshatid.is
Sjáumst á Reykholtshátíð!
Húsið opnar kl. 15:30
Miðaverð: 4.500 kr.
Flytjendur
-
Reykholtshátíð
Opnunartónleikar
-
Dúó StemmaTónleikhúsið Duo Stemma
-
Arnheiður Eiríksdóttir
Jóhannesarpassía J.S. Bachs
-
Elena Postumi
Pianist
-
Joaquín Páll PalomaresPerformer of the beautiful Romance by Amy Beach
-
Pétur Björnsson
Performer of chamber works
-
Þórunn Ósk Marinósdóttir
víóla
-
Guðbjartur Hákonarson
Fiðluleikari og styrkþegi 2023.
-
Sigurður Bjarki Gunnarsson
Sellóleikari.
-
Jóhann Kristinsson
Söngvari og kynnir sem syngur aríu Fuglafangarans.
-
Kristinn Sigmundsson
Söngvari