Japönskusmiðja

Japönskusmiðja

Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort

fim. 20.08.2026 16:00

Fyrir krakka 9-12 ára.
Í japönsku smiðjunni kynnumst við fyrst stafrófunum hiragana og katakana, lærum að skrifa nafnið okkar og kynna okkur á japönsku.
Síðan horfum við á einn anime þátt og höfum orðabingó þar sem við finnum japönsk orð sem koma fram í þættinum.
Smá verðlaun í boði fyrir þá sem ná bingó!
Leiðbeinandi smiðjunnar er myndlistarkonan Heiðrún Gréta Viktorsdóttir. Heiðrún lærði Japanskt tungumál og menningu við Háskóla Íslands og fór út í skiptinám til Japans í eitt ár. Hún hefur kennt Japönsku sem val á unglingastigi í grunnskóla og hefur mjög gaman af því að spjalla við og virkja einstaklinga í áhugamálum sínum sem viðkoma Japanskri menningu.
Þáttaka er ókeypis og skráning er nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir:
Heiðrún Gréta Viktorsdóttir
heidrun.greta.viktorsdottir@reykjavik.is