Svavar Knútur í Kómedíuleikhúsinu

Svavar Knútur í Kómedíuleikhúsinu

Kómedíuleikhúsið Haukadal, Svalvogavegur, 471 Haukadalur Kort

lau. 15.08.2026 20:00

ISK 3900.00
Miðar / Skráning

Hinn einstaki söngvaskáld Svavar Knútur kemur í Haukadal laugardagskvöldið 15. ágúst og býður gestum upp á hlýlega og eftirminnilega kvöldstund með söng, sögum og hugleiðingum um lífið og tilveruna.

Miðaverð: 3.900.- kr

Miðasala midix.is

Miðasölusími: 891 7025

Á tónleikunum flytur Svavar bæði ný lög og vinsælt eldra efni, ásamt sígildum íslenskum sönglögum. Á milli laga bregður hann á leik með léttu spjalli og persónulegum frásögnum sem hafa gert tónleika hans svo vinsæla.

Svavar Knútur hefur um árabil skapað sér einstakan sess fyrir einlæga, hlýja og fjölbreytta tónleika þar sem engir tveir viðburðir eru eins. Engin föst efnisskrá er fyrir hendi – tónleikarnir verða til í augnablikinu og mótast af stemningunni og samspili Svavars og áhorfenda.

Komdu og njóttu einstakrar kvöldstundar þar sem tónlist, húmor og mannleg hlýja fara hönd í hönd.

Öll eru hjartanlega velkomin. Börn eru einnig velkomin og fá frían aðgang í fylgd foreldra eða afa og ömmu.

Flytjendur

  • Svavar Knutur
    Svavar Knutur

    Icelandic singer/songwriter/storyteller and Fjord folker.

    I make broccoli music.