Brúðubíllinn - Afmælisveislan á Árbæjarsafni

Brúðubíllinn - Afmælisveislan á Árbæjarsafni

Árbæjarsafn, Kistuhylur 4, 110 Reykjavík Kort

mán. 03.08.2026 14:00

Verið velkomin á sýningu Brúðubílsins, Afmælisveisluna í leikstjórn Aldísar Davíðs á Árbæjarsafni mánudaginn 3. ágúst, frídag verslunarmanna kl. 14.

Lilli api, Dúskur og fleiri skrautlegar persónur munu baka drulluköku fyrir afmælisbarnið.
Verkið er uppfullt af töfrum, glimmeri og fjörugum lögum. Jafnvel munu sokkapar og sápa bresta í söng!
Þessi sýning er fyrir alla aldurshópa. Á safninu er leikvöllur og alls konar útileikföng fyrir káta krakka.
Leikarar eru:
Hörður Bent Steffensen
Hugrún Ylfa
Ísak Óli Borgarsson
Gestum býðst til að taka myndir með brúðunum og Lilla apa eftir sýninguna.
Einnig verða litabækur, litir, bolir og peysur í öllum stærðum til sölu!
Ókeypis inn og öll velkomin!