Sæbrautarstokkur - Opið hús í Vogaskóla
Vogaskóli Reykjavík, , Reykjavík Kort
fim. 02.07.2026 16:30
Reykjavíkurborg, Vegagerðin og Betri samgöngur standa fyrir opnu húsi um Sæbrautarstokk, þriðjudaginn 30. júní og fimmtudaginn 2. júlí frá klukkan 16:30-18:00 í Vogaskóla. Öllum er velkomið að mæta og kynna sér verkefnið. Íbúar í Vogabyggð og Vogahverfi eru sérstaklega hvattir til að koma og ræða við þau sem vinna að undirbúningi stokksins og umferðarlausnum á framkvæmdatíma.
Umhverfismat vegna Sæbrautarstokks og deiliskipulagstillögur eru nú í auglýsingu í skipulagsgátt og er opið fyrir umsagnir.
Á opna húsinu gefst kostur á að kynna sér verkefnið í máli og myndum.
Fulltrúar Reykjavíkurborgar, Vegagerðarinnar, Betri samgangna og ráðgjafateymi verða á staðnum til að svara spurningum og veita nánari upplýsingar um deiliskipulagstillögurnar, umhverfismatið, framkvæmdina og áhrif hennar á nærumhverfið.
Sæbrautarstokkur er eitt af lykilverkefnum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Hann verður á tæplega 1 km löngum kafla frá mislægum gatnamótum við Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Á yfirborði stokksins verður nýr, grænn hverfisgarður sem bindur saman hverfin Vogahverfi og Vogabyggð.
Markmið Sæbrautarstokks er að bæta umhverfisgæði og tengja betur saman hverfi, greiða fyrir umferðarflæði á Sæbraut og að greiða götu Borgarlínunnar. Þá er mannvirkinu ætlað að bæta flæði vöruflutninga við Sundahöfn og er ein af forsendum Sundabrautar.
Hægt er að nálgast frekari gögn um málið í skipulagsgátt:
Deiliskipulagsbreytingar: https://www.skipulagsgatt.is/issues/2026/580
Umhverfismat:
https://www.skipulagsgatt.is/issues/2026/339
Flytjendur
-
Vegagerðin
Færðarupplýsingar má sjá á umferdin.is.
Vegna annarra fyrirspurna og ábendinga má nýta hnappinn „Hafðu samband“ á heimasíðu Vegagerðarinnar, vegagerdin.is.
Fyrirspurnum og athugasemdum er ekki svarað hér á Facebook.
-
Betri samgöngur ohf
Tilgangur Betri samgangna ohf. er að hrinda í framkvæmd Samgöngusáttmálanum sem ríkið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu 26. september 2019.