Björgvin minningartónleikar - Nýir aukatónleikar
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
sun. 29.11.2026 20:00
Björgvin Halldórsson - maður sviðs og söngva
28. NÓVEMBER KL. 16 - UPPSELT
28. NÓVEMBER KL. 20 - UPPSELT
29. NÓVEMBER KL. 20 - NÝIR AUKATÓNLEIKAR
“Sumir hverfa fljótt úr heimi hér, skrítið stundum hvernig lífið er.
Eftir sitja margar minningar, þakklæti og trú.”
Björgvin Halldórsson var maður sviðs og söngva. Hann er goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Laugardaginn 28. nóvember hittumst við í Eldborg og heiðrum minningu hans.
Björgvin gerði tónlistina að ævistarfi og eftir hann liggja margar helstu perlur íslenskrar dægurtónlistar. Sjálfur hafði hann í huga að halda upp á 75 ára afmæli sitt með heiðurstónleikum og var undirbúningur hafinn þegar hann lést skyndilega þann 9. apríl síðastliðinn. Í samráði við fjölskyldu Björgvins var tekin sú ákvörðun að halda áfram með hugmyndir sem þegar voru komnar fram. Eldborg var bókuð og Björgvin var sjálfur búinn að velja mynd í plakatið og langt kominn með val á lögum og söngvurum.
Björgvin hugsaði stórt og verður því allt lagt í sölurnar að gera glæsilega tónleika í minningu hans. Við vitum jú öll hver hann var!
Svala Bjōrgvins vinnur nú að endurgerð af laginu Skýið, sem faðir hennar Björgvin samdi árið 1978 og kom út á plötunni Ég skal syngja fyrir þig. Allir Íslendingar þekkja þetta lag og Svala flutti það svo eftirminnilega í jarðarför föður síns. Skýið með Svölu kemur út föstudaginn 12. júní.
Svala og Krummi Björgvinsbörn leiða landslið íslenskra tónlistarmanna á svið Eldborgar og í sameiningu flytja þau okkur tónlistina sem Björgvin gaf okkur síðastliðna áratugi.
Ógleymanlegt kvöld í vændum þar sem Vetrarsól brýst í gegnum Skýið og okkar Eina ósk er að Riddari götunnar og Gullvagninn rati rétta leið. Björgvin, við Syngjum fyrir þig og Þó líði ár og öld mun Minning þín lifa.
Athugið: Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki er fyrirhugað að streyma tónleikunum.
GESTGJAFAR:
Svala
Krummi
SÖNGVARAR:
Ásgeir Trausti
Eyjólfur Kristjánsson
GDRN
Helgi Björnsson
Mugison
Ragnheiður Gröndal
Sigga Beinteins
Sigríður Thorlacius
Stefán Hilmarsson
SÉRSTAKUR GESTUR:
Ari Eldjárn
LEYNIGESTIR:
???
HLJÓMSVEIT:
Þórir Úlfarsson - Hljómborð, hljómsveitarstjórn, útsetningar
Bjarni Sigurðarson - Gítar
Einar Scheving - Slagverk
Gunnlaugur Briem - Trommur
Jón Elvar Hafsteinsson - Gítar
Ómar Guðjónsson - Pedal Steel
Óttar Sæmundsen - Bassi
Phillip Joseph Doyle - Sax
Tómas Jónsson - Hljómborð
BAKRADDIR:
Andrea Ingvarsdóttir
Kristján Gíslason
Íris Lind
KÓR:
Karlakórinn Fóstbræður
LEIKSTJÓRN:
Gunnar Helgason
MIÐAVERÐ:
Gull: 21.990 (gulgrænt á mynd)
Úrvals: 19.990 (fjólublátt á mynd)
A sæti: 17.990 (rautt á mynd)
B sæti: 15.990 (blátt á mynd)
C sæti: 13.990 (grænt á mynd)
D sæti: 11.990 (gult á mynd)
E sæti: 8.990 (bleikt á mynd)
Mynd af sal hér
Umsjón: Sena Live
Flytjendur
-
Svala
Dís íslenskrar popptónlistar, sem skapar töfra með hverjum tón!
-
KRUMMISöng og lagahöfundur
-
GDRNSöngkona, þekkt fyrir jólalög og samstarf við Magnús Jóhann.
-
Þórir Úlfarsson
Píanósnillingur
-
Einar SchevingSérlegur aðstoðarmaður
-
Jon Elvar Hafsteinssongítarleikari
-
Ómar Guðjónsson
Gítarleikari
-
Gunnar Helgason
Kynnir sína nýjustu barnabók, Birtingur og símabannið mikla
-
Ari EldjárnEinn allra vinsælasti uppistandari þjóðarinnar.
-
Ásgeir Trausti
Musician
-
EyfiGestasöngvari
-
Helgi BjörnsIcelandic musician celebrating 40 years in the industry
-
RAGGA GRÖNDALSöngkona og jóga kennari
-
Sigga BeinteinsEinstök tónlistarkona með kröftuga rödd.
-
Sigríður Thorlacius
Þekktur söngvari
-
Stefán HilmarsSérstakur gestur
-
Kristján Gíslason
Söngvari kvöldsins.
-
Íris LindBakraddir
-
Asgeir
Asgeir Trausti Einarsson (born July 1st, 1992), better known simply as Asgeir, is an Icelandic singer-songwriter, born in Laugarbakki and based in the capital of Reykjavik.
-
Björgvin Halldórsson
Gestgjafinn sjálfur, hinn óviðjafnanlegi, töfrandi, stórbrotni og goðsagnakenndi.