Himna

Himna

Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort

fim. 09.07.2026 10:00

Á sýningunni Himnu er rýnt í endurnýjun jarðvegs sem gerir jörðina byggilega, kveikir líf og hlúir að því. Vísindalegar og póshúmanískar nálganir hníga í auknum mæli að því að jarðvegurinn sé sjálfstýrt, lifandi kerfi – kvikt samlífi fremur en dauð auðlind. Hann styður við vöxt sem og mikilvæga hringrás niðurbrots og rotnunar. Hann er frjór vettvangur fyrir goðsagnir, getgátur og skáldskap samhliða vísindalegri þekkingu. Sýningin leiðir saman hóp samtímalistamanna sem notast við ólíkar vinnuaðferðir en varpa ljósi á jarðveg sem lifandi minni og arkíf ólíkra tegunda.

Sýningarstjóri:
Thomas Pausz (FR/IS)
Listamenn:
Peder Bjurman (SE)
Gediminas & Nomeda Urbonas (LT)
Eglė Budvytytė (LT)
Johanna Seeleman (DE)
Sigrún Thorlacius (IS)
Linda Boļšakova (LV)
Lucrezia Costa (IT)
Samstarfsaðilar/Framleiðendur
Norræna húsið, Háskóli Íslands og Listahátíð í Reykjavík

Flytjendur