Jazzhátíð Reykjavíkur í Iðnó 30. ágúst
Iðnó, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík Kort
sun. 30.08.2026 19:00
Kvöldpassi - Iðnó
Jazzhátíð Reykjavíkur fer fram dagana 25. – 30. ágúst 2026.
Boðið verður upp á glæsilega sex daga tónleikadagskrá þar sem jazz og spunatónlist verður í forgrunni og frábært listafólk frá Evrópu og Íslandi kemur fram.
Kvöldpassi er í boði öll kvöld hátíðarinnar og veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Ekki er selt inn á staka tónleika á kvölddagskrá í Hörpu.
Kvöldpassi kostar 7.990 kr. í Iðnó en við bjóðum upp á afsláttarverð, 5.990 kr., fyrir þau sem kjósa lægra verð og sérstakt stuðningsverð fyrir velunnara hátíðarinnar, 8.990 kr.
Sunnudagur 30. ágúst
- 19:00 – Iðnó | Tu ha? Tu bjö! (IS)
- 20:00 – Iðnó | Mikael Máni quintet (IS)
- 21:00 – Iðnó | Anna Gréta, Silva & Ómar Guðjónsson (IS)
Flytjendur
-
Jazzhátíð ReykjavíkurJazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.
Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.
-
Tu Ha? Tu Bjö!
Tveir trompetar, tveir saxófónar, tveir Tumar. Lúðraflokkur sem spilar akústíska blásarakvartett.
-
Mikael Máni
Íslenskur gítarleikari, handhafi Íslensku tónlistarverðlaunanna 2023 fyrir jazzplötu ársins.