Myndlistarnámskeið á haustönn fyrir 7-9 ára 🎨🧑🏼‍🎨

Myndlistarnámskeið á haustönn fyrir 7-9 ára 🎨🧑🏼‍🎨

Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland, Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík Kort

mið. 09.09.2026 15:00

Myndlistarnámskeið fyrir 7 til 9 ára (börn fædd 2017 – 2019) 🎨

Listasafn Íslands býður upp á skapandi og spennandi myndlistarnámskeið fyrir börn í listaverkstæðinu í safninu við Fríkirkjuveg 7. Unnið verður út frá sýningum safnsins þar sem listaverkin verða rannsökuð og áhersla lögð á að þjálfa lita- og formskynjun þáttakenda, sem fá svo tækifæri til að nota ólíkan efnivið og vinna í margskonar miðla, eins og málun, grafík og skúlptúr.

Markmið námskeiðsins er að fá börn til að nálgast myndlist af meira öryggi og forvitni, þar sem kennsla fer fram bæði gegnum upplifun, samræðu og vinnu í höndunum. Í lok námskeiðs verður haldin sýning fyrir vini og fjölskyldu þar sem afrakstur námskeiðsins verður til sýnis.

Mælst er til þess að börn mæti í fatnaði sem hentar fyrir málningarvinnu, sull og gleði!

Gott aðgengi fyrir öll.

▪️ Námskeið I

Miðvikudagar kl. 15 – 16:30

9. september – 2. desember 2026

📎 Skráningarhlekkur: https://www.abler.io/shop/frirvk/listasafn/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTk2ODM=

👩🏼‍🎨 Kennari: Ragnheiður Gestsdóttir, myndlistarmaður

💰 Verð: 62.000 kr. Ath. hægt er að nýta Frístundarstyrk.

📍Staðsetning: Listasafn Íslands. Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík

Fyrirspurnir sendist á mennt@listasafn.is

▪️ Námskeið II

Fimmtudagar kl. 15 – 16:30

10. september – 3. desember 2026

📎 Skráningarhlekkur: https://www.abler.io/shop/frirvk/listasafn/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTk2ODU=

👩🏼‍🎨 Kennari: Ragnheiður Gestsdóttir, myndlistarmaður

💰 Verð: 62.000 kr. Ath. hægt er að nýta Frístundarstyrk.

📍Staðsetning: Listasafn Íslands. Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík

Fyrirspurnir sendist á mennt@listasafn.is

Flytjendur