Komdu og njóttu notalegrar sögustundar með okkur þar sem lesið verður upp úr Kókoshnetukeppninni, fyrstu lesbók úr Evolytes ævintýraheiminum.
Kókoshnetukeppnin, eftir Írisi E. Gísladóttur, er skemmtileg og spennandi saga fyrir börn á aldrinum 5 til 9 ára.
Logi og Stampi eru bestu vinir en þegar vinir fara að keppa getur ýmislegt gerst. Báðir eru sannfærðir um að eiga fleiri kókoshnetur en hinn. En hvor hefur rétt fyrir sér?
Í þessari skemmtilegu sögu fylgjast börnin með ævintýrum vinanna á sama tíma og þau læra að skilja tölur og bera saman magn á eðlilegan og leikandi hátt. Sagan vekur forvitni, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og skapar skemmtilegar samverustundir. Aftast í bókinni eru einfaldar spurningar sem styðja við skilning og opna á góðar umræður eftir lesturinn.
Við hlökkum til að sjá börn og fjölskyldur þeirra á notalegri sögustund. Ókeypis aðgangur!
Rithöfundar og skáld sem eru að gefa út bók og hafa áhuga á að standa fyrir kynningu á nýju verki og/eða eldri verkum sínum geta pantað rými á Borgarbókasafninu sér að kostnaðarlausu. Sjá hér:
https://borgarbokasafn.is/rymi-fyrir-hofunda-sofnunum-okkar
Viðburðurinn á facebook: https://www.facebook.com/events/1521330276145289/
Nánari upplýsingar veitir:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6230
iris@evolytes.com
Sögustund | Kókoshnetukeppnin
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort
mið. 08.07.2026 16:30