Töfrabörn bjóða upp á skapandi og uppbyggilegt sumarnámskeið fyrir börn þar sem leikur, listir og hreyfing eru nýtt til að efla sjálfstraust, samkennd og gleði í námi og samskiptum. Markmiðið er að börn fái að uppgötva eigin styrkleika, auka vellíðan og fái verkfæri sem hjálpa þeim að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs með auknu sjálfstrausti og trú á eigin getu.
Námskeiðið er haldið í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn, Skólabraut 2, Hafnarfirði.
Sumarnámskeið Töfrabarna
Nýsköpunarsetrið við lækinn Skólabraut 2, Tjarnarbraut 3, 220 Hafnarfjörður Kort
fös. 14.08.2026 09:00
Á námskeiðinu er unnið með þemu á borð við:
jákvæða leiðtogahlutverkið
gróskuhugarfar og trú á eigin getu
að mæta tilfinningum, jafnvel þeim stormasamari, með ró og hugrekki
að slaka meðvitað og nýta hugleiðslu sem innri kraftgjafa
samkennd og vináttu
gleði og sköpun
tilfinningar og tjáningu
Þemun eru könnuð á fjölbreyttan og skapandi hátt í gegnum:
leiklist og spuna
dans og hreyfingu
myndlist og skapandi verkefni
tónlist og rytma
Námskeiðið byggir á faglegum viðmiðum jákvæðrar sálfræði og núvitundar. Áhersla lögð á töfraverkfærin í gegnum leiki og sköpun.
Leiðbeinendur námskeiðsins eru:Hrefna Hallgrímsdóttir, leikkona, leikstjóri og leiklistarkennari með áratuga reynslu af skapandi starfi með börnum og Aðalheiður Mjöll námsráðgjafi og núvitundar- og jógakennari. Báðar eru þær með MA diplómu í Jákvæðri sálfræði.