VAKA | Rímnakveðskapur með Röggu Gröndal
Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort
lau. 19.09.2026 13:30
Í þessari vinnustofu kynnast þátttakendur listinni að kveða rímur — aldagamalli íslenskri hefð þar sem söguljóð eru flutt með sérstökum rímnalögum, stemmum, sem hver kvæðamaður mótar á sinn hátt. Rímur voru um aldir helsta skemmtiefni landsmanna og lifa enn í dag, ekki síst fyrir tilstilli kvæðamannafélaga sem hafa haldið hefðinni við kynslóð fram af kynslóð.
Vinnustofunni stýrir Ragnheiður (Ragga) Gröndal, tónlistarkona og dyggur félagi í Kvæðamannafélaginu Iðunni, sem stofnað var í Reykjavík árið 1929 í þeim tilgangi að æfa kveðskap og safna rímnalögum og alþýðuvísum. Þátttakendur fá að spreyta sig á að kveða vísur undir mismunandi stemmum og kynnast því hvernig þessi lifandi munnlega hefð hljómar og lifir enn í dag. Vinnustofan hentar öllum sem hafa áhuga á íslenskri sönghefð, hvort sem þeir hafa reynslu af kveðskap eða ekki.
VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. Hvort sem þú kemur til að hlusta, læra, dansa, syngja, skapa eða einfaldlega njóta samverunnar, þá gefst þér kostur á að kynnast fjölbreyttum alþýðulistum á nýjan hátt – og verða hluti af þeim. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.
Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins
Flytjendur
-
VAKAVaka er sýning félaga í Myndlistarfélagi Akureyrar og gefur mynd af fjölbreyttu starfi myndlistarmanna. Sýningin er liður í að kynna félagið og félagsmenn þess.