Skáldaval #2 - Sigríður Hagalín Björnsdóttir velur bókina Eurotrash eftir Christian Kracht

Skáldaval #2 - Sigríður Hagalín Björnsdóttir velur bókina Eurotrash eftir Christian Kracht

Skálda bókabúð, Vesturgata 10, 101 Reykjavík Kort

mið. 26.08.2026 20:00

Skáldaval er nýr bókaklúbbur Skáldu þar sem rithöfundur eða skáld velur bók sem verður til umræðu eina kvöldstund. Sigríður Hagalín Björnsdóttir mun velja næstu bók, en fyrir valinu varð Eurotrash eftir svissneska rithöfundinn Christian Kracht.

„Eurotrash er ein þeirra bóka sem ég kaupi aftur og aftur, því ég er alltaf annað hvort búin að gefa hana eða lána einhverjum eintakið mitt. Höfundur fer í ferðalag með aldraðri móður sinni til að gefa burt illa fenginn ættarauð, og ferðasagan er svo fyndin og sorgleg og miskunnarlaus, og segir okkur eitthvað mikilvægt um vestræna menningu og kærleikann. Ég er ekki alveg viss um hvað það er, en kannski er hægt að komast að því með því að ræða hana í sameiningu,“ segir Sigríður um ástæðu þess að hún valdi Eurotrash.

Til þess að taka þátt í Skáldavali þarftu einfaldlega að kaupa bókina í Skáldu á Vesturgötu eða í vefverslun: https://skalda.is/vara/skaldaval-2-bokaklubbur-med-sigridi-hagalin-bjornsdottir-eurotrash/.

Bókaklúbburinn mun síðan hittast miðvikudaginn 26. ágúst kl. 20 og Sigríður leiðir umræður.

Athugið að takmarkaður fjöldi er í boði!