Quarashi

Quarashi

Laugardalshöllin, Engjavegur 8, 104 Reykjavík Kort

lau. 19.09.2026 20:00

RISAtónleikar Quarashi í Laugardalshöll. Hin goðsagnakennda tónleikasveit Quarashi fagnar 30 ára afmæli með tónleikum í Laugardalshöll laugardaginn 19. september 2026. Quarashi kom saman á síðasta ári á Lopapeysunni á Akranesi eftir 10 ára hlé og sýndi þar og sannaði að sveitin er enn kraftmesta tónleikasveit Íslandssögunnar. Á tónleikunum í Laugardalshöll hyggst sveitin flytja öll bestu og þekktustu lög sveitarinnar og öllu verður tjaldað til hvað hljóð og mynd varðar auk þess sem von er á ýmsum gestum sem komu við sögu á glæsilegum ferli sveitarinnar.

20 ára aldurstakmark er á viðburðinn


Flytjendur

  • Quarashi
    Quarashi

    Hin goðsagnakennda tónleikasveit Quarashi fagnar 30 ára afmæli.