MÍT heiðrar Elly og Villa

MÍT heiðrar Elly og Villa

Iðnó, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík Kort

sun. 30.08.2026 18:00

MÍT heiðrar Elly og Villa

Iðnó

Sunnudagurinn 30. ágúst kl. 18:00

Ókeypis aðgangur

Nemendur söngdeildar MÍT og Stórsveit MÍT flytja úrval laga af

ferli systkinanna Ellyjar Vilhjálmsdóttur og Vilhjálms Vilhjálmssonar.

Nemendur rytmískrar söngdeildar Menntaskóla í tónlist ásamt Stórsveit MÍT heiðra

söngsystkynin Elly Vilhjálms og Vilhjálm Vilhjálms Jazzhátíð Reykjavíkur. Tónleikarnir verða sunnudaginn 30. ágúst í Iðnó klukkan 18:00 og er aðgangur ókeypis. Tónlistarstjóri og stjórnandi stórsveitar MÍT er Samúel Jón Samúelsson og um söngþjálfun sér Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir.

Á efniskrá verður úrval laga af ferli systkinanna Ellyar og Villa Vilhjálms.

Flytjendur

  • Reykjavík Jazz Festival
    Reykjavík Jazz Festival

    25. - 30. ágúst 2026 / August 25th-30th 2026

    www.reykjavikjazz.is

  • Stórsveit MÍT

    Tónlistarstjóri er Samúel Jón Samúelsson

  • Nemendur rytmískrar söngdeildar Menntaskóla í tónlist

    Söngsýning heiðrar söngsystkinin Elly Vilhjálms og Vilhjálm Vilhjálms

  • Samuel Jon Samuelsson
    Samuel Jon Samuelsson

    Gestur kvöldsins.

  • Jazzhátíð Reykjavíkur
    Jazzhátíð Reykjavíkur

    Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.

    Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.