Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 24. ágúst. Landsbankinn hefur verið stoltur þátttakandi og máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að venju upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Fjörið fer fram bæði í Reykjastræti og við Hörputorg, þar sem Landsbankinn stendur fyrir dagskrá í samstarfi við Hafnartorg og Hörpu.
Sólon og Dimma dúskur mæta í Landsbankann á Menningarnótt og bjóða yngstu gestunum upp á skemmtilega stund fulla af tónlist, söng og dansi.
Sólon er ofurhetja sem býr á Sólinni en ferðast til jarðarinnar til að skoða spennandi staði, syngja og spila lög, fræða börnin og hafa gaman. Með honum verður Dimma dúskur sem syngur og dansar og saman ætla þau að halda uppi fjörinu og skemmta gestum Landsbankans á Menningarnótt.
Á svæðinu verður einnig nóg um að vera fyrir yngstu gestina – boðið verður upp á blöðrur, candy floss, popp og fleira skemmtilegt. Sproti mætir að sjálfsögðu líka á svæðið og tekur þátt í fjörinu!
Heildardagskrá í Landsbankanum á Menningarnótt:
13.30 - Lalli töframaður
14.30 - Hnokkar og sveifluball
15.30 – Sólon og Dimma dúskur
16.30 – Emmsjé Gauti
Sólon og Dimma dúskur í Landsbankanum
Landsbankinn, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 15:30
Flytjendur
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.
-
Sólon
Ofurhetja sem býr á Sólinni og kemur til jarðarinnar til að leika sér.
-
Sólon og Dimma dúskur
Sólon Barnaefni is an author known for children's books.