Mín framtíð, dagana 10,–13. mars 2027

Mín framtíð, dagana 10,–13. mars 2027

Laugardalshöllin, Engjavegur 8, 104 Reykjavík Kort

mið. 10.03.2027 08:00

Framhaldsskólakynning og Íslandsmót iðn- og verkgreina

Kynntu þér nám í framhaldsskóla á „Minni framtíð“

Dagana 10,–13. mars 2027 fer fram stóra framhaldsskólakynningin Mín framtíð í Laugardalshöllinni.

Hefur þú áhuga á blikksmíði, húsasmíði, eða stærðfræði? Undrum geimsins? Fjármálum? Kvikmyndatækni, listum, bílum eða matreiðslu? Öll ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á því yfir þrjátíu ólíkir skólar kynna námsframboð sitt.

Gert er ráð fyrir að á bilinu 9.000 til 10.000 grunnskólanemendur mæti á viðburðinn en öllum nemendum 9. og 10. bekkjar er boðið.

Á sama tíma heldur Verkiðn Íslandsmót iðn- og verkgreina, þar sem keppendur reyna á hæfni sína í krefjandi verkefnum. Keppt hefur verið í 20 – 27 greinum hverju sinni og takast keppendur á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku.

Flytjendur

  • Mín framtíð
    Mín framtíð

    Verkiðn stuðlar að eflingu iðnmenntunar á Íslandi og hvetur til alþjóðlegrar vitundar og samstarfs með skipulagningu Mín framtíð: Íslandsmóts iðn-og verkgreina og þátttöku í alþjóðlegum mótum.