Hekl fyrir byrjendur
Faxatorg - Faxafen (2. hæð), Faxafen 10, 108 Reykjavík Kort
fim. 27.08.2026 18:00
að fá upprifjun í hekli? Vertu með í litlum hópi þar sem við lærum grunnlykkjurnar í hekli svo þú getir hafist handa við að hekla það sem þú vilt, peysur, húfur, teppi...
Dagsetning: Fimmtudaginn 27. ágúst
Tími: 18 - 20
Verð: 12.900 kr.
Innifalið er kennsla, heklunál & garn
Námskeið hentar vel fyrir byrjendur & upprifendur. Hlýr tebolli og hugguleg stemning. Kennari Hera Sigurðardóttir.
Sköpun og handavinna eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín.
Flytjendur
-
Flóð & fjaraHandunnar macramé vörur. Námskeið í macramé, hekli & prjóni fyrir alla aldurshópa. Söluaðili Bobbiny bómullargarns
-
Hera Sigurðardóttir
Kennari með menntun í mannfræði og hagnýtri menningarmiðlun, víðtæk reynsla af starfi með börnum.