Listamaður að störfum - Áslaug Jónsdóttir

Listamaður að störfum - Áslaug Jónsdóttir

Gallerí Fold, Rauðarárstígur 14, 105 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 12:00

Listamenn Gallerís Foldar setjast við trönur eða borð og mála eða teikna.
Gestir fá innsýn inn í vinnubrögð listamannsins og gefst tækifæri á að fylgjast með listaverki verða til!
Áslaug Jónsdóttir er myndhöfundur, rithöfundur og teiknari. Hún er hvað þekktust fyrir bækurnar um Litla skrímslið og Stóra skrímslið sem hún bæði skrifar og myndskreytir. Bækurnar hafa hlotið fjölda verðlauna og verið þýddar á fjölmörg tungumál.
Áslaug verður viðstödd á Menningarnótt í Gallerí Fold milli 12-14 og veitir gestum og gangandi innsýn í hinn stórskemmtilega skrímslaheim.

Flytjendur