Silfurbjöllurnar

Silfurbjöllurnar

Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Kort

fim 12. nóv 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Íslensk og norsk tónlist - ný og gömul, ásamt verkum sígildra meistara eins og Arutiunian og Morricone! Málmblásturs kvintettinn Silfurbjöllurnar býður upp á fjölbreytta, lifandi og skemmtilega tónleika 12. nóvember kl. 20 í Hannesarholti. Hópurinn leggur áherslu á að frumflytja ný verk eftir íslensk tónskáld, og mun frumflytja Hnúfubak, nýtt verk eftir Ingibjörgu Azimu á tónleikunum. Silfurbjöllurnar voru stofnaðar í 2022 og hafa komin fram við ýmis tækifæri, meðal annars í Hörpu, á vegum Reykjavíkurborgar og sem hluti af tónleikaröðunum 15:15 og Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni. Kvintettinn er skipaður þeim Hönnuh O’Connor og Øyvind Lapin Larsen á trompeta, Önnu Sigurbjörnsdóttur á horn, Sigrúnu Kristbjörgu Jónsdóttur á básúnu og Ingibjörgu Azimu á bassabásúnu.

Efnisskrá: Einsetumaður einu sinni, þjóðlag, úts. Ingibjörg Azima Armenian Scenes: 1. Morning Scene, Alexander Arutiunian Sólarlag, Ingibjörg Azima Cinema Paradiso- Love Theme, Ennio Morricone, úts. Peet du Toit Three Norwegian Tunes, Edvard Grieg, úts. Peter Reeve Folketone fra Sunnmøre, þjóðlag, úts. Øyvind Lapin Larsen Hnúfubakur, Ingibjörg Azima Bruremarsj, Jasper Magne Førde, úts. Øyvind Lapin Larsen