Orgelsumar í Hallgrímskirkju - Matthías Harðarson
Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort
lau. 11.07.2026 12:00
Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2026
Hádegistónleikar – Matthías Harðarson, dómorganisti
Laugardagur 11. júlí 2026 kl. 12
Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á https://tix.is/venue/2069
Aðgangseyrir 3.200 kr.
Matthías Harðarson er organisti við Dómkirkjuna í Reykjavík. Matthías hóf píanónám 10 ára gamall við Tónlistarskólann í Vestmannaeyjum. Meðal kennara hans þar voru þau Gíslína Sól Jónatansdóttir, Guðmundur H. Guðjónsson og Kittý Kovács. Hann lærði einnig á saxófón undir handleiðslu Stefáns Sigurjónssonar. Að loknu miðprófi á píanó hóf Matthías orgelnám hjá þáverandi organista Landakirkju, Guðmundi H. Guðjónssyni, og síðar hjá Kittý Kovács. Árið 2016 lauk Matthías kirkjuorganistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og árið 2020 kantorsprófi og BA-prófi við Listaháskóla Íslands. Þar lærði hann orgelleik hjá Birni Steinari Sólbergssyni, kórstjórn hjá Magnúsi Ragnarssyni og litúrgískan orgelleik hjá Guðnýju Einarsdóttur, Eyþóri Inga Jónssyni og Láru Bryndísi Eggertsdóttur. Matthías lauk meistaraprófi í kirkjutónlist við konunglega tónlistarháskólann í Árósum undir leiðsögn Kristians Krogsøe, Lars Rosenlund Nørremark og Ulriks Spang-Hanssen. – Samhliða orgelnáminu lagði Matthías stund á vélstjórnarnám og útskrifaðist sem vélfræðingur árið 2017.
Hallgrimskirkja – Þinn tónleikastaður
Flytjendur
-
Matthías Harðarson
Matthías Harðarson lýkur einleiksáfanga í orgelleik frá Tónskóla þjóðkirkjunnar.
-
Hallgrímskirkja
Hallgrímskirkja er sóknarkirkja í hjarta Reykjavíkur og stærsta kirkja Íslands.