Allskonar bækur. Allskonar höfundar
Stokkseyri, Hafnargata, Stokkseyri Kort
sun. 06.09.2026 14:00
Allskonar bækur. Allskonar höfundar.
Steinunn Sigurðardóttir, Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Ægir Þór Jahnke.
Þessir höfundar eru dæmi um þá breidd sem er í íslenskum bókmenntum. Steinunn Sigurðardóttir hefur verið starfandi rithöfundur í áratugi og verið í fararbroddi íslenskra um langt skeið. Höfundarferill hennar er fjölbreyttur; ævisögur, skáldsögur, leikrit og ljóð. Ný bók er væntanleg frá Steinunni í haust eða vetur og mun hún kynna þá bók og líka gefst kostur á að kaupa eintak í forsölu.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir er þekkt fréttakona sem sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu árið 2016 Eyland sem vakti mikla athygli. Síðustu bækur Sigríðar hafa verið sagnfræðileg skáldverk þar sem hún fjallar um ævi Ólöfu ríku og þegar Englendingar drápu Björn Þorleifsson, hirðmann danska konungsins og eiginmann Ólafar.
Ægir Þór Jahnke er ungur rithöfundur og hefur gefið út fjölda ljóðabóka undir eigin útgáfu sem heitir Endahnútar útgáfa. Raunar er svolítið erfitt að henda reiður á hvenær Ægir Þór gaf út sína fyrstu ljóðabók, hefur hann ekki bara alltaf verið skrifandi? Ýmiskonar efni annarskonar liggur eftir hann einnig, greinar og ritdómar og hann hefur verið viðloðandi félagsskapinn Skandall. Á seinasta ári gaf hann út sína fyrstu skáldsögu, að því talið er, bókina Grár köttur, vetrarkvöld.

Upplesturinn hefst kl. 14 sunnudaginn 06.09.á Brimrót.
Léttar veitingar
Flytjendur
-
Steinunn Sigurðardóttir
rithöfundur og skáld
-
Sigríður Hagalín BjörnsdóttirVegur allrar veraldar