Undirdjúpin
Borgarleikhúsið | Litli Salur, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort
sun. 21.02.2027 20:00
Hilmir Snær Guðnason mætir áhorfendum af fullum krafti í Undirdjúpunum – nístandi, fyndinni og óvæginni sýningu byggðri á einu áhrifamesta verki Fjodors Dostojevskís.
Í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar verður sagan að magnþrungnum einleik um mann sem stendur einn gegn öllum - en þó aðallega sjálfum sér. Hér takast á stolt og skömm, þráin eftir nálægð og löngunin til að brjótast undan reglum skynseminnar.
Á sviðinu tekst Hilmi Snæ að draga áhorfendur inn í hugarheim manns á mörkum örvæntingar og uppreisnar, á meðan Þorleifur Arnar umbreytir klassískum texta í lifandi, sjónræna og kraftmikla sviðsupplifun. Undirdjúpin er sýning sem lifir áfram löngu eftir að tjaldið fellur.
Höfundur: Fjodor Dostojevskí
Leikgerð: Rune David Grue
Þýðing: Maríanna Clara Lúthersdóttir
Leikstjórn: Þorleifur Örn Arnarsson
Leikmynd og búningar: Jósef Halldórsson
Leikari:
Hilmir Snær Guðnason
Flytjendur
-
Hilmir Snær Guðnason
Leikstjóri