MOMENT á Menningarnótt | DJ Margeir & gestir
Klapparstígur, Klapparstígur, 101 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 12:30
👉 Í ár ætla DJ Margeir og MOMENT að bæta um betur og styrkja af öllu afli Minningarsjóð Bryndísar Klöru. 👈
Ef þú ætlar að taka flugið með okkur á Menningarnótt og njóta augnabliksins til fulls getur þú þakkað fyrir þig með því að styrkja þetta hjartnæma og mikilvæga málefni.
Á moment.is getur þú tekið þátt og keypt styrktarmiða þar sem öll framlög renna óskipt í Minningarsjóð Bryndísar Klöru. DJ Margeir og MOMENT munu jafna öll framlög, krónu á móti krónu, allt að 500.000 krónum.
Eins og alltaf er aðgangur á MOMENT opinn öllum og ókeypis, í boði Icelandair.
Verndari Minningarsjóðs Bryndísar Klöru er Halla Tómasdóttir, forseti Íslands.
✨ STYRKTARMIÐAR ✨
Ef þú kaupir styrktarmiða fer nafn þitt í pott og þú átt möguleika á vægast sagt glæsilegum vinningum frá veitingastöðum í nágrenni við MOMENT.
✨ VINNINGAR ✨
Monkeys, fimm rétta kvöldverður fyrir tvo ásamt fordrykk
KOL, sex rétta smakkferðalag fyrir tvo
Bastard Brew & Food, botnlaus brunch fyrir tvo
Lebowski Bar, gjafabréf að verðmæti 15.000 kr.
Kauptu styrktarmiða fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á moment.is og leggðu góðu málefni lið. Þú ert alltaf að fara að vinna!
✨ UM VIÐBURÐINN ✨
Einu sinni ári gerast undursamlegir töfrar á Klapparstíg sem erfitt er að lýsa í orðum. Þúsundir sálna lifna til lífsins, upplýsast og svífa saman inn í undraheim danstónlistar undir fagmannlegri handleiðslu DJ Margeirs, sem ár hvert laðar að sér sífellt óvæntari og skemmtilegri gesti.
Í rúm tíu ár hafa ungir sem aldnir farið á hugljómandi flug á Moment á Menningarnótt, þar sem allir hafa leyfi til að sleppa af sér beislinu og gefa sig á vald guðdómlegra kærleikskrafta. Frjáls tjáning. Trylltir taktar.
Viðburðurinn litríki er ókeypis í boði Icelandair og allir eru velkomnir.
Borgarstjóri mun setja Menningarnótt á MOMENT sviðinu kl. 12:30 laugardaginn 22. ágúst.
„MOMENT er í raun einskonar dansmaraþon á Menningarnótt þar sem góð stemmning, ljós og kærleikur eru í fyrirrúmi. Okkur langar að nota þann kraft sem verður til á Klapparstígnum til góðs og hvetjum alla sem hafa notið augnabliksins með okkur í gegnum árin til að styrkja Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Ég skora jafnframt á aðra öfluga aðila sem hafa sett svip sinn á Menningarnótt í gegnum árin að finna leið til að styðja við þetta góða málefni. Ef við öll leggjumst á eitt getum við látið hátíðina snúast um meira en skemmtunina eina og skapað raunveruleg, jákvæð áhrif.“
— DJ Margeir
Flytjendur
-
DJ Margeir
Ekki bara hrátt kjötstykki sem kann að bítskipta.
-
ExosLong-time force in the Icelandic techno scene.
-
MaguguMagugu is a worldly wide versatile pidgin rap experimentalist, MC, and producer from Ajegungle, a city of Lagos and now based in the UK.
-
Oculus
Fridfinnur Sigurdsson (Oculus) name has risen quickly the last year
and is now a leading voice in the Icelandic dance music scene.
He first appeared on the label Communique in September 2008
and has now released several EPs on respected labels acros..
-
BELLAMIX69
DJ
-
Lísbet Rós
Opening the night, setting the tone from the start.
-
Icelandair
We’re proud to bring the spirit of Iceland to the world.
Please don‘t share personal information and booking references here. Contact our team on official channels: www.icelandair.com/support/contact/ ✈️
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.