Blús við höfnina - Styrktartónleikar fyrir Píeta samtökin
ÆGIR 220 brugghús, Strandgata 90, 220 Hafnarfjörður Kort
lau. 27.06.2026 15:00
Það er sannkölluð blúsveisla framundan í Ægi 220 í Hafnarfirði, laugardaginn 27. júní kl. 15:00–00:00.
Margir af fremstu blúsurum landsins stíga á svið og leggja málefninu lið á stórtónleikum til styrktar Píeta samtökunum.
Á dagskrá verða 13 hljómsveitir, glæsileg bílasýning frá Krúser og dýrindis matvagnar verða á svæðinu.
Allur ágóði af miðasölu rennur óskiptur til Píeta samtakanna og allt tónlistarfólk gefur vinnu sína til styrktar þessu mikilvæga málefni.
Gestir geta farið af svæðinu og komið aftur að vild meðan á viðburðinum stendur.
Miðasala á: https://www.midix.is/index.php/is/blus-vid-hofnina-27-jun-2026/eid/1093
Staðsetning: Ægir 220, Strandgata 90, Hafnarfirði
Húsið opnar: kl. 14:30
Tónleikar hefjast: kl. 15:00
Bílasýning frá: kl. 15:00
Miðaverð: 3.900 kr.
Fram koma meðal annars:
Guðmundur Pétursson, Krummi Björgvinsson, Björn Thoroddsen, Óskar Logi, Beggi Smári, Beggi Morthens, Þorleifur Guðjóns, Einar Scheving, Ebenezer, CC Fleet Blues Band, Lame Dudes, Ungfrúin, Hráefni, MMC, Blússveit Jonna Ólafs, GG Blús og Fógetarnir.
Við hvetjum alla blúsunnendur, bílaáhugafólk og velunnara Píeta samtakanna til að mæta og eiga ógleymanlegan dag saman við höfnina.
Flytjendur
-
Blúsfélag Reykjavíkur
Reykjavik Blues Society
-
Krúser, félag áhugamanna um akstur
Krúser - bara gaman
-
CC Fleet Blues BandCC Fleet Blues Band flytur kraftmikinn blús með áhrifum úr fönk, sól og rokki.
-
Lame DudesFínt blúsrokk ábreiðuband.
-
Hráefnihljómsveitin Hráefni Valdi Fly gít/söng Þorleifur Guðjónsson bassi Þórdís Claessen trommur Bergþór Morthens gítar -
Ebenezer BlúsbandHljómsveit
-
KRUMMISöng og lagahöfundur
-
Guðmundur Pétursson
Gítar og söngur
-
Björn ThoroddsenIcelandic guitarist known for his original music and arrangements of Icelandic folk songs.
-
Óskar Logi
Gítarleikari úr The Vintage Caravan.
-
Beggi Smári
Einn ástsælasti blúsgítarleikari Íslands, þekktur fyrir kraftmikla spilamennsku og ástríðu fyrir blúsnum.
-
Einar SchevingSérlegur aðstoðarmaður
-
Píeta samtökinSjálfsvígsforvarnarsamtök sem reka gjaldfrjálsa þjónustu fyrir fólk í sjálfsvígshættu og aðstandendur
-
FógetarnirFógetarnir is a rock trio from Reykjavík, Iceland, with a sound deeply rooted in the blues and classic rock of the 60s and 70s. The name "Fógetarnir" translates to "The Sheriffs" in Icelandic, and they certainly lay down the law when it comes to music.
-
GG Blús
GG blús er rokkaður blúsdúett, mannaður tveimur Guðmundum á gítar og trommur og söng!